Mezcal: Svalari systir tequila
Doña Vega Mezcal Espadín var stofnað af Sonya Auvray Vega árið 2019.
Framleiðslan fer fram á bænum La Curva í Mexikó og er unnin af höndum kvenna í fimmta kvenlegg þ.e Doña Hortensia Hernández Martínez og dætrum hennar. Það sem er einkennandi fyrir Doña Vega Mezcal er létt reykarbragð með undirtónum af ávöxtum og hvítum pipar. Auk þess er siður hjá Hernández mægðum að bæta við smá chili og salti við framleiðsluna en það er gert til að fjarlægja illa anda samkvæmt aldargamalli hjátrú. Þrátt fyrir að covid hafi skollið á ári eftir hefur Doña Vega Mezcal fór í sölu hefur drykkurinn unnið tvöföld gullverðlaun í San Francisco World Spirits Competition 2021 og er að slá í gegn víðsvegar um Bandaríkin.